Skilmálar

Almennt

Snyrtistofan Fegurð áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga ásamt því að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Þetta á einnig við ef um villur í reiknireglum vefverslunnar eiga sér stað.

Pantanir

Snyrtistofan Fegurð tekur við pöntun þegar greiðsla hefur borist. Um leið og greiðsla berst er kaupanda send staðfesting í tölvupósti. Gjafakort eru send á PDF formi í tölvupósti og getur viðskiptavinur framvísað því í síma eða útprentuðu þegar hann kemur í meðferð. Einnig er hægt að fá gjafakort sent heim í umslagi. 

Greiðslumöguleikar

Snyrtistofan Fegurð býður upp á að greiða með kreditkorti og debetkorti í gegnum örugga greiðslusíðu frá Borgun

Afhending vöru

Vörur eru sendar með Íslandspósti næsta virka dag.  Einnig er hægt að sækja pantanir á Snyrtistofuna Fegurð á opnunartíma. Opið virka daga frá kl. 10-18. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.

Afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts gilda um afhendingu vöru frá Póstinum. Skilmálar Póstsins eru aðgengilegir á vefsíðu fyrirtækisins. Snyrtistofan Fegurð ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi Póstsins. Verði vara fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Snyrtistofunni Fegurð og þar til hún berst viðtakanda er tjónið á ábyrgð flutningsaðila.

Sendingarkostnaður

Enginn sendingarkostnaður er hjá Snyrtistofunni Fegurð.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna, henni sé skilað í fullkomnu lagi og í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja. Ekki er hægt að fá gjafakort endurgreidd, hægt er að breyta innihaldi gjafabréfs og borga mismun.

Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Snyrtistofuna Fegurð með spurningar.

Gölluð vara

Sé vara gölluð er viðskiptavini boðin ný vara í staðinn og við greiðum allan kostnað sem gæti komið upp við sendingu.

Verð

Vinsamlegast athugið að verð á netinu getur breyst án fyrirvara.

Skattar og gjöld

Öll verð í netversluninni eru með VSK og reikningar eru gefnir út með VSK.

Trúnaður

Snyrtistofan Fegurð heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.

Varnarþing

Þessi samningur er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans, skal það rekið fyrir íslenskum dómstólum. Um skilmála þessa gilda ákvæði laga um húsgöngu- og fjarsölu nr. 96/1992, ákvæði laga um lausafjárkaup nr. 50/2000 eftir því sem við getur átt og ákvæði laga um neytendakaup nr. 48/2003. Allir frestir sem nefndir eru í lögum nr. 96/1992 byrja að líða þegar móttaka vöru á sér stað. Skilmálar þessir gilda frá 20. nóvember 2018.

Snyrtistofan Fegurð
Linnetsstíg 2
220 Hafnarfirði
Opnunartími: 10-16 á virkum dögum.

Tölvupóstfang: fegurd@fegurd.is
Sími: 5676677
Kt: 560205-1040
VSK númer: 85932