Yfirborðshreinsun, kröftug enzym djúphreinsun, djúpvirkandi ampúla borin á andlit og háls, sérstök ampúla borin á augnsvæði með sogæða- og punkta nuddi og svo settur rakagefandi kollagen augnmaski yfir, lúxus Platinum maski borinn á háls og andlit. Platinum dagkrem er borið á háls og andlit til að ljúka meðferð.
Fóta & Handadekrið
Nærandi ilmolíufótabað, neglur snyrtar og allt sigg fjarlægt. Fæturnir skrúbbaðir með olíusaltskrúbbi upp að hnjám og því næst er vöðvaslakandi fótanudd þar sem þreytan líður úr manni. Vatnslosandi maski borinn á upp að hnjám. Hægt er að velja um annað hvort lúxus fótamaska sokka sem við klæðum fótinn í sem djúpnærir vel hælana, neglur og naglabönd eða lökkun á tásur með essie lakki (litur að eigin vali).
Hendur fà gott nudd með maska - sannkallað lúxus dekur.