Lifting & Recovery Cream

Lifting & Recovery Cream

Venjulegt verð 0 kr 11.990 kr Útsala

Andlitslyfting í krukku!

Lifting & Recovery Cream er algjör bomba fyrir húð sem er byrjuð að slakna og tapa orku. Sérlega endurnýjandi og nærandi krem sem hefur lyftandi áhrif á slaka húðvefi.

Ríkulegt magn af A-Vítamíni og Hafrapróteini örva náttúrulega framleiðslu húðar á kollagen- og elastínþráðum sem sjá um að viðhalda stinnleika og fyllingu „plump“ í húðinni ásamt því að veita henni aukna orku og seiglu gegn þyngdarafli tímans.
A-Vítamín hefur lengi verið notað í krem og meðferðum bæði hjá læknum og snyrtifræðingum vegna mikillar virkni og sýnilegs árángurs á húð, en það er einstaklega endurnýjandi og örvandi fyrir náttúrulega starfsemi húðarinnar og betrumbætir húðstrúktur svo um munar. Frábært orkuskot fyrir krefjandi húðgerðir, sléttir og dregur saman fínar línur, fyrirbyggir og hægir á öldrun húðarinnar, viðheldur stinnleika og fyllingu, jafnar litarhátt og gefur hraustlegan húðlit og ljóma.