Yfirborðshreinsun, kröftug djúphreinsun og sérhæfður lúxus gúmmífletti maski frá Janssen Cosmetics. Hægt að velja um C-vítamín, súrefnis, Dead Sea hreinsandi, Goji Berry, Aloa De stress eða Argan olíu maska.
Andlitsmeðferð - 60mín
Yfirborðshreinsun, djúphreinsun, ampúla, nudd og maski.
Andlitsmeðferð - 70mín
Yfirborðshreinsun, djúphreinsun, gufa og kreistun ef þarf, ampúla, nudd á andlit, herðar, höfuð, hendur og maski.
Detox Andlitsmeðferð - 75mín
AHA Detox hreinsun, kröftug Detox enzym djúphreinsun, (gufa og kreistun ef þarf)djúpvirkandi Detox ampúla borin á bringu, háls og andlit, Black Detox Bubble maski látinn liggja á andliti og hann lokar húðholum og bakteríuhreinsar yfirborð húðar. Meðferðinni líkur með að við berum sérvalið Detox krem á andlit og háls.
Retinol Lift Andlitsmeðferð - 60mín
Yfirborðshreinsun, kröftug Enzym djúphreinsun, ampúla, lúxus Retinol maski, sérstakt Retinol serum og krem frá Janssen Cosmetics er borið vel á andlit til að ljúka meðferð og ná fram góðum húðljóma, heilbrigði og Fegurð. Áhrifarík andlitsmeðferð með öflugum innihaldsefnum sem sporna gegn öldrun húðarinnar og bæta ásýnd.
MicroDerma Andlitsmeðferð
Yfirborðshreinsun, öflug djúphreinsun, nálar, ampúlur og lúxus maski á augu og andlit. Öflugasta og sérhæfasta snyrtimeðferðin á markaðnum í dag.
Derma AquaBooster
Yfirborðshreinsun, kröftug djúphreinsun, Booster efni sett djúpt niður í húð, þannig það nær niður í leðurhúð (dermis) með 20 örfínum örnálum. Mismunandi Booster efni eru notuð t.d. C-vítamín, hýaluronsýra, mismuandi andoxunarefni eða Retinol (við veljum það sem hentar viðkomandi húðgerð best). Meðferðin endar á sérstökum maska sem er sérblandaður fyrir húðgerð viðkomandi. Þessi meðferð er ein sú kröftugasta. Hentar einstaklega vel þreyttri húð sem vantar líf,orku, glóa og betra súrefnisflæði.
Platinum Fegurð andlitsmeðferð
Yfirborðshreinsun, kröftug enzym djúphreinsun, djúpvirkandi ampúla borin á andlit og háls, sérstök ampúla borin á augnsvæði með sogæða- og punkta nuddi og svo settur rakagefandi kollagen augnmaski yfir, lúxus Platinum maski borinn á bringu, háls og andlit. Platinum krem er borið á andlit, háls og bringu til að ljúka meðferð.
Djúpvirkandi Kollagen Xtra andlitsmeðferð - 60mín
Yfirborðshreinsun, djúphreinsun, kreistun (ef þarf), ampúla og frostþurrkaður kollagen maski yfir háls, andlit og augu. Kröftugt orkuboozt fyrir allar húðgerðir, fyllt er á kollagen forða húðarinnar og fær húðin góða fyllingu og unglega ljóma. Húðin verður þéttari, sléttari og línur minna sjáanlegar.
Soothing andlitsmeðferð - 60mín
Yfirborðshreinsun, mild enzym djúphreinsun, kreistun (ef þarf), ampúla sem styrkir háræðar og slakar á roða í húð, nudd og endar meðferðin á gúmmífletti maska sem róar og sefar húðina. Meðferðin hentar viðkvæmri, ertri rósroða húð einstaklega vel.
Ávaxtasýru andlitsmeðferð - 45mín
Yfirborðshreinsun, djúphreinsun, ávaxtasýrur og maski. Sýrurnar fjarlægja dauðar húðfrumur og örva náttúrulega starfsemi húðarinnar. Árangurinn er jafnari og sléttari húð, minni húðholur, jafnvægi í fituframleiðslu og hreinni húð. Auk þess minnka fínar línur og hrukkur, rakamagn eykst, litaflekkir lýsast ásamt því að fríska upp á náttúrulegan húðlit. Frábær og kröftug meðferð sem hentar öllum. Gott er að fara í eina meðferð til að örva og fríska upp á starfsemi húðarinnar en meðferðin sýnir bestan árangur þegar tekinn er kúr uppá 4-6 skipti.
Húðhreinsun - 60mín
Yfirborðshreinsun, djúphreinsun, gufa, kreistun og maski.
Herra andlitsmeðferð - 60mín
Andlitsmeðferð sem er sérsniðin fyrir karlmannshúð - yfirborðshreinsun, kröftug djúphreinsun, gufa , kreistun (ef þarf) ampúla með virkum efnum, sérstakt herra dagkrem er borið á andlit og háls. Meðferðin endar á sérvöldum lúxus maska.